Fréttir

Hátíðarmessa í Flateyjarkirkju á laugardaginn

Flateyjarkirkja

Ágætu Flateyingar, Inneyingar, velunnarar Flateyjar og allir sem verða í Flatey á laugardaginn.

Hátíðarmessa verður í Flateyjarkirkju laugardaginn 12. ágúst nk. kl. 14:00. Sr. Hildur Björk Hörpudóttir mun messa, organisti er Ingimar Ingimarsson og verður kór Reykholtsprestakalls með í för til að gleðja okkur með söng. Ítarlegri messuskrá verður dreift meðal kirkjugesta þannig að allir geta sungið með og altarisganga verður í okkar fallegu kirkju. 

Við hvetjum alla til að sækja messu í Flateyjarkirkju, hlýða á Guðsorð í okkar friðsælu og fögru kirkju og njóta friðarstundar í kirkjunni nk. laugardag.

Sóknarnefnd og kirkjustjórn Flateyjarkirkju