Mikið verður um að vera í Flatey um helgina þegar hinir árlegu Flateyjardagar fara fram. Spáin er góð og tilvalið fyrir alla sem tök hafa á að skella sér í eyjuna fögru og gleðjast með góðu fólki. Dagskráin er meðal annars á þessa leið:
Föstudagur
Kl. 22:00 | Barsvar (Pub quiz) í Saltkjallaranum |
Laugardagur
Kl. 11:00 | Ratleikur um Flatey er frábær fjölskylduskemmtun þar sem samvinna, úrræðasemi og gleði ræður ríkjum. Mæting á reitnum fyrir framan Hótel Flatey og allir þátttakendur fá glaðning að leik loknum. |
Kl. 14:00 | Hátíðarmessa í Flateyjarkirkju |
Kl. 15:00 | Messukaffi í samkomusal Hótels Flateyjar |
Kl. 16:00 | Íþróttamót Flateyjar þar sem keppt verður í Kýló. Keppnin fer fram á reitnum fyrir framan Hótel Flatey, hún er öllum opin og verður geggjuð. |
Kl. 20:30 | Bingókvöld í Frystihúsinu spjaldið á 500 kr. og veglegir vinningar í boði. |
Vekjum athygli á að tímasetningar og dagskrá geta breyst lítillega – þetta er jú Flatey þar sem tíminn er afstæður og allir hressir. Hvetjum því fólk til að fylgjast með tilkynningum hér á heimasíðu FFF, Facebook síðunni Flateyingar og almennt á förnum vegi þegar í eyjuna er komið.
Eitt að lokum. Fáir hafa náð að fanga stemmningun á Flateyjardögum jafn vel og Hermann Þór Snorrason gerði í myndbandi fyrir tveimur árum. Linkur á myndbandið er hér fyrir neðan, njótið vel og sjáumst hress um helgina.
Myndband frá Flateyjardögum 2016.
Með sumarkveðju,
Stjórn FFF