Aðalfundur Framfarafélags Flateyjar verður haldinn laugardaginn 12. mars n.k. klukkan 14:00 í sal Barðstrendingafélagsins, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Salurinn heitir Konnakot og er á 2. hæð (bjalla 204).
Dagskrá aðalfundar Framfarafélagsins er eftirfarandi:
- Skýrsla stjórnar um störf ársins 2015.
- Reikningar félagsins fyrir árið 2015 lagðir fram til umræðu og samþykktar.
- Fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 lögð fram til umræðu og samþykktar.
- Tillögur til breytinga á lögum félagsins
- Kosning stjórnar og formanns skv. gr. 3.1.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga úr hópi annarra félaga.
- Skýrslur annarra félaga eða nefnda tengdum Flatey sem óska eftir að gera grein fyrir starfi sínu.
- Önnur mál.
Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á fundinn og minnum um leið á Vetrarhátíð Framfarafélagsins sem byrjar kl. 19:00 að kvöldi sama dags.
Með bestu kveðjum,
Stjórn framfarafélags Flateyjar