Framfarafélag Flateyjar heldur aðalfund þann 7. mars nk. og óskar eftir framboðum í stjórn félagsins. Daði Heiðar Sigurþórsson mun víkja úr stjórn að þessu sinni sem og Gyða Steinsdóttir formaður, en lög félagsins leyfa að hámarki 6 ára setu sem hún hefur nú fyllt með miklum sóma. Aðrir núverandi meðlimir stjórnar gefa að sjálfsögðu kost á sér áfram, enda ákaflega gefandi og mikilvægt að vinna að hagsmunum okkar Flateyinga. Framboð og fyrirspurnir sendist á Gyðu Steinsdóttur, gydasteins70@gmail.is, fráfarandi formann Framfarafélags Flateyjar.
Athygli er vakin á að stjórn Framfarafélagsins stefnir á að koma með lagabreytingartillögu á aðalfundinum varðandi lengd stjórnarsetu, þar sem hugmyndin er að stytta hámarkið. Vonum við að sú tillaga komi til með að auðvelda nýliðun í stjórn félagsins.