Aðalfundir Flateyjarveitna og Framfarafélags Flateyjar verða haldnir laugardaginn 7. mars n.k. í sal Lions á Íslandi, Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi.
Aðalfundur Flateyjarveitna hefst kl. 13:00 og er dagskráin eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar um störf ársins 2019
2. Reikningar félagsins fyrir undanfarandi starfsár 2019
3. Fjárhagsáætlun stjórnar fyrir yfirstandandi starfsár 2020
4. Tillaga stjórnar um félagsgjald fyrir næsta starfsár 2020
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins
6. Kosning stjórnar og formanns skv. ákvæðum 4. kafla samþykkta félagsins
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga úr hópi félagsmanna utan stjórnar
8. Önnur mál
Stjórn félagsins viljum hvetja félagsmenn að fjölmenna á aðalfund Flateyjarveitna, taka þátt í umræðum og koma á framfæri skoðunum á málefnum félagins. Jafnframt viljum við minna á að samkvæmt ákvæðum 4. kafla samþykkta félagsins verður stjórn félagsins kosin til tveggja ára.
Aðalfundur Framfarafélagsins hefst kl. 14:00 og er dagskráin eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar um störf ársins 2019
2. Reikningar félagsins fyrir árið 2019 lagðir fram til umræðu og samþykktar
3. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 lögð fram til umræðu og samþykktar
4. Tillögur til breytinga á lögum félagsins
5. Kosning stjórnar og formanns skv. gr. 3.1.
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga úr hópi annarra félaga.
7. Skýrslur annarra félaga eða nefnda tengdum Flatey sem óska eftir að gera grein fyrir starfi sínu.
8. Önnur mál.
Stjórn Framfarafélagsins vill minna félagsmenn á lög félagsins og eðli málsins samkvæmt sérstaklega þær greinar sem snúa að aðalfundi og atkvæðagreiðslum. Áhugafólki um málefni Flateyjar sem ekki eru félagsmenn í Framfarafélagi Flateyjar er bent á 3. lið fyrstu greinar um aukafélagsaðild.
Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á fundina og minnum um leið á Vetrarhátíð Framfarafélagsins sem byrjar kl. 19:00 að kvöldi sama dags í Fáksheimilinu Víðidal.
Með bestu kveðjum,
Stjórn Flateyjarveitna og
Stjórn Framfarafélags Flateyjar