Aðalfundir Flateyjarveitna og Framfarafélags Flateyjar verða haldnir laugardaginn 11. mars n.k. í sal Barðstrendingafélagsins, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Salurinn heitir Konnakot og er á 2. hæð (bjalla 204).
Aðalfundur Flateyjarveitna hefst kl. 13:00 og er dagskráin eftirfarandi:
- Skýrsla stjórnar um störf ársins 2016
- Reikningar félagsins fyrir undanfarandi starfsár 2016
- Fjárhagsáætlun stjórnar fyrir yfirstandandi starfsár 2017
- Tillaga stjórnar um félagsgjald fyrir næsta starfsár 2017
- Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins
- Kosning stjórnar og formanns skv. ákvæðum 4. kafla samþykkta félagsins
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga úr hópi félagsmanna utan stjórnar
- Önnur mál
Stjórn Flateyjarveitna vill minna á 4. grein samþykkta félagsins um "Félagsstjórn" en stjórnarkjör mun fara fram samkvæmt 1. lið greinarinnar en stjórn FV er kosin á aðalfundi til tveggja ára í senn.
Aðalfundur Framfarafélagsins hefst kl. 14:00 og er dagskráin eftirfarandi:
- Skýrsla stjórnar um störf ársins 2016.
- Reikningar félagsins fyrir árið 2016 lagðir fram til umræðu og samþykktar.
- Fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 lögð fram til umræðu og samþykktar.
- Tillögur til breytinga á lögum félagsins
- Kosning stjórnar og formanns skv. gr. 3.1.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga úr hópi annarra félaga.
- Skýrslur annarra félaga eða nefnda tengdum Flatey sem óska eftir að gera grein fyrir starfi sínu.
- Önnur mál.
Stjórn Framfarafélagsins vill minna félagsmenn á lög félagsins og eðli málsins samkvæmt sérstaklega þær greinar sem snúa að aðalfundi og atkvæðagreiðslum. Áhugafólki um málefni Flateyjar sem ekki eru félagsmenn í Framfarafélagi Flateyjar er bent á 3. lið fyrstu greinar um aukafélagsaðild.
Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á fundina og minnum um leið á Vetrarhátíð Framfarafélagsins sem byrjar kl. 19:00 að kvöldi sama dags.
Með bestu kveðjum,
Stjórn Flateyjarveitna og
Stjórn Framfarafélags Flateyjar
Mynd: AG 2012